fbpx
SKILMÁLAR

1. ALMENN ÁKVÆÐI:
Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum og þjónustu á vefsvæðinu www.evaalberts.is. Eigandi evaalberts.is er EvaAlberts ehf. kt.451196-2439, Bólstaðarhlíð 60, 105 Reykjavík. Til einföldunar verður hér á eftir talað um EvaAlberts ehf eða evaalberts.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur evaalberts.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsvæði evaalberts.is teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskipti á netinu. 
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. Evaalberts.is selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu.

2. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR:
Öll verð á evaalberts.is eru gefin upp í íslenskum krónum. Vörusala er með VSK en sala á þjónustu er án VSK þar sem að þjónustan er ekki VSK skyld. Verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur og áskilur EvaAlberts ehf. sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

3. AÐGANGUR:
Kaupandi hefur leyfi til að nota evaalberts.is og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem evaalberts.is setur. Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á evaalberts.is. Evaalberts.is áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup á evaalberts.is verður það tilkynnt til lögreglu. Evaalberts.is áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að evaalberts.is ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að því að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.

4. PÖNTUN, AFHENDING OG INNSKRÁNING:
EvaAlberts ehf. býður upp á einkatíma og námskeið fyrir einstaklinga/hópa og fyrirtæki, auk þess að selja vörur t.d.bækur. Við kaupin eða við fyrstu innskráningu á evaalberts.is skráir kaupandi fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og tölvupóstfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista og SMS lista evaalberts.is. Pöntun kaupanda á evaalberts.is er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Hafi einkatími ekki verið greiddur 48 tímum áður en hann á að fara fram verður hann afbókaður. Vara er ekki afhent eða þjónusta veitt fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu. Ekki er hægt að fá námskeiðsgjald endurgreitt ef ekki er búið að afbóka 7 dögum áður en námskeið hefst. Eftir að tími eða námskeið hefst áskilur EvaAlberts ehf. sér rétt til að endurgreiða ekki tíma eða námskeiðsgjald, ef kaupandi ákveður að hætta á við tímann eða hætta á námskeiði. Evaalberts.is er skuldbundið að afgreiða vörupöntun kaupanda eftir að greiðsla hefur farið fram og sendir kaupanda staðfestingu með tölvupósti. Jafnframt sendir evaalberts.is kaupanda afrit af reikningi þ.e. ef greiðsla berst frá kaupanda. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst. Kaupandi fær vörusendingu með Póstinum og evaalberts.is ber ekki ábyrgð á afhendingartíma sendingarinnar. 

5. YFIRFERÐ Á VÖRU:
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við evaalberts.is. Evaalberts.is áskilur sér rétt að sannreyna staðhæfingu innan 7 daga.

6. PERSÓNUVERND:
Seljandi fer með allar upplýsingar sem algört trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til að klára viðkomandi viðskipti. Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu. Upplýsingarnar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Persónuverndarstefna félagsins er aðgengileg evaalberts.is

7. SAMNINGURINN:
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála evaalberts.is. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði evaalberts.is. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum evaalberts.is.

8. GREIÐSLA:
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi á ýmsa vegu:

  • Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með kreditkorti.

  • Millifærsla: Ef óskað er eftir að greiða með millifærslu þarf kaupandi að millifæra yfir á reikning evaalberts.is og setja í tilvísun/stutt skýring númer á pöntun. Ef evaalberts.is hefur ekki móttekið greiðslu innan tveggja daga falla kaupin sjálfkrafa niður.

9. SKILARÉTTUR:
Evaalberts.is skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur skilað vöru til evaalberts.is innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Evaalberts.is áskilur sér rétt til að skoða að varan sé í lagi og til að koma í veg fyrir misnotkun á 14 daga skilarétti. Varan þarf að vera óopnuð, í upprunalegum umbúðum. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum eru skilyrði fyrir vöruskilum. 

Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum, skv. tilmælunum, mun evaalberts.is endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur notaði við greiðslu – þ.e. með bakfærslu á kredit- eða debetkorti eða innlögn á bankareikning.      

10. GALLI:
Ef vara er gölluð er evaalberts.is skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Evaalberts.is mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst eða hringi í evaalberts.is sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Evaalberts.is sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Evaalberts.is áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.

11. EIGNARÉTTUR:
Seldar vörur eru eign evaalberts.is þar til kaupverð er greitt að fullu.

12. ANNAÐ:
Evaalberts.is áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu evaalberts.is telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

13. ÁGREININGUR:
Skrifstofa, heimilisfang og varnarþing EvaAlberts ehf. er í Reykjavík. Rísi ágreiningur verður honum vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur.skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

14. GILDISTÍMI:
Skilmálar þessir gilda frá 1. maí 2020

15. FYRIRTÆKJAUPPLÝSINGAR:
EvaAlberts ehf
Bólstaðarhlíð 60
105 Reykjavík
Sími: 898-9955
Netfang: eva@evaalberts.is
kt.451196-2439