fbpx

PERSÓNUVERNDARYFIRLÝSING EVAALBERTS EHF.

ALMENNT
Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig við umgöngumst þær persónuupplýsingar sem við geymum um þig og hvaða réttindi þú átt varðandi upplýsingarnar. EvaAlberts ehf. er eigandi evaalberts.is. TIl einföldunar verður hér eftir talað um EvaAlberts ehf. og evaalberts.is sem “vefsíðu” eða “við.”

Þú getur skoðað og notið www.evaalberts.is  án þess að gefa upp nokkrar persónuupplýsingar, þar með talið netfangið þitt eða IP tölu. Þú getur óskað eftir frekari gögnum og upplýsingum um allt sem er í boði með því að skrá þig á vefsíðuna okkar. Við heitum því að gæta fyllsta trúnaðar og virða rétt þinn varðandi meðferð persónuupplýsinga um þig. Okkur er umhugað um persónuvernd og við viljum að þú vitir hvernig við meðhöndlum persónuupplýsingar um þig. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu persónuupplýsinga sem falla undir stefnuna. Þér er bent á stefnuna í innskráningarferli þegar þú sækir um þjónustu frá okkur og þú ert beðin(n) um að staðfesta lestur hennar. Stefnan er aðgengileg á evaalberts.is.

ÁBYRGÐARAÐILI
EvaAlberts ehf. kt.451196-2439, Bólstaðarhlíð 60, Reykjavík, er ábyrgðaraðili fyrir þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustu og vörur evaalberts.is

EvaAlberts ehf. leggur ríka áherslu á að tryggja, trúnað, áreiðanleika og örugga og ábyrga meðferð upplýsinga. Því höfum við sett upp varnir á heimasíðu okkar. Vefsvæðið inniheldur tengla á ýmis önnur vefsvæði sem aðilar eða ótengdir þriðju aðilar reka. Athugið að EvaAlberts ehf. ber ekki ábyrgð á gagnaleynd eða innihaldi annarra vefsetra. Þessi persónuverndarstefna á því eingöngu við um vefsvæði EvaAlberts ehf.

HVAÐA UPPLÝSINGUM SÖFNUM VIÐ OG HVERNIG SÖFNUM VIÐ ÞEIM?
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um einstakling sem gera mögulegt að persónugreina hann, beint eða óbeint. Við notum persónuupplýsingar alla jafna í þeim tilgangi að virkja aðgang þinn að vefsíðum okkar, veita þér fyrsta flokks þjónustu, upplýsa þig um tilboð sem við teljum að þú hafir áhuga á. Um er að ræða upplýsingar um viðskiptavini sem hafa skráð sig á upplýsingasíður EvaAlberts ehf., keypt efni eða þjónustu, setið námskeið eða tekið þátt í vinnustofum og kynningartímum hjá EvaAlberts ehf. Við söfnum einkum eftirfarandi persónuupplýsingum um þig:

  • Tengiliðaupplýsingar, s.s. nafn, kennitölu, kyn, heimilisfang, tölvupóstfang og símanúmer. Þetta gerum við til þess að geta afhent þér vörur og þjónustu og til þess að geta sent þér tilkynningar (með tölvupósti eða SMS-skilaboðum) í tengslum við vörukaup og tilboð á vörum og þjónustu. Tengiliðaupplýsingum söfnum við frá þér í gegnum síma, utan nets (s.s. með að hringja í þjónustuver), vefsvæði eða tölvupósti, eða með öðrum hætti þar sem þú hefur m.a. sjálfviljugur veitt þessar upplýsingar.

  • Greiðsluupplýsingar, t.d. debet eða kreditkortanúmer. Við höldum utan um útgefna reikninga og greiðsluupplýsingar sem eru nauðsynlegar vegna samningssambands okkar og til að uppfylla skilyrði skatta- og bókhaldslaga, þegar þú borgar fyrir vöru eða þjónustu.

  • Upplýsingar um vörukaup- og/eða þjónustu, svo sem um dagsetningu viðskipta, hvar viðskiptin áttu sér stað og hvað var keypt. Þetta gerum við til þess að halda utan um kaupsögu og við skil og skipti á vörum. Jafnframt eru þessar upplýsingar nauðsynlegar vegna samningssambands okkar og til að uppfylla skilyrði skatta- og bókhaldslaga.

  • Upplýsingar um viðskiptavin, þegar þú sækir um að fara í reikningsviðskipti hjá okkur. Einnig söfnum við upplýsingum um vanskilaskrá þeirra sem vilja stofna til slíkra viðskipta við okkur og þá með þeirra samþykki.

  • Samskiptasaga, þegar þú hefur samband við okkur, s.s. óskar eftir upplýsingum, kemur athugasemdum á framfæri, sendir kvörtun eða beiðni, með tölvupósti, í síma eða samtali. Símtöl kunna að vera hljóðrituð en tölvupóstar og samskipti í gegnum þjónustukerfið okkar eru geymd í allt að tvö ár.

  • Markaðssetning á netinu, þegar við sendum þér markaðs- og tilboðsefni með bréfpósti, tölvupósti eða SMS-skilaboðum s.s. auglýsingar, kynningarefni, kannanir, afsláttarmiða, tilboð og meðmæli með vörum, enda hafir þú áður veitt samþykki fyrir slíkri notkun. Þessi markaðssetning kann að vera byggð á upplýsingum um kaupsögu þína þannig að þú fáir upplýsingar og tilboð sem við teljum sniðin sérstaklega að þér. Þú getur afþakkað slíkt kynningarefni inn á vefsíðunni.

  • Tæknileg gögn. Þegar þú heimsækir vefsíður okkar þá söfnum við gögnum sjálfkrafa sem fela í sér upplýsingar eins og IP-tölu, tegund vafra, auðkenni tölvunnar og tölvukerfi. Einnig eru skráðar upplýsingar um að þú tengist vefsíðunni okkar í gegnum hlekk og þá af hvaða vefsíðu, hvernig þú notar vefsíðuna, tíma og dagsetning heimsóknar, þann tíma sem þú varðir á þessum síðum, auk upplýsinga um kaup á vörum og þjónustu. Slíkum upplýsingum kann að vera safnað með notkun vefkaka (e. cookies). 

Að jafnaði fáum við framangreindar upplýsingar beint frá þér en upplýsingarnar kunna þó að koma frá þriðja aðila, t.d. Credit Info á Íslandi, stjórnvöldum og/eða þjónustuveitendum okkar.

TILGANGUR OG LAGALEGAR FORSENDUR:
EvaAlberts ehf. vistar og vinnur eingöngu með þau gögn sem nauðsynleg eru og heimilt er að vinna með samkvæmt lögum, samningum við aðila eða upplýstu samþykkti einstaklinga og annarra þeirra sem að verkefnum koma. Gögn og upplýsingar sem EvaAlberts ehf. geymir í upplýsingakerfum sínum, eru einungis notuð til að við getum sinnt hlutverki okkar á sem bestan máta, þjónustað og stutt viðskiptavini okkar eins og frekast er kostur. EvaAlberts ehf. mun aldrei dreifa persónuupplýsingum til þriðja aðila án heimildar.

Tilgangurinn er að láta þér í té stuðning og þjónustu vegna kaupa á vörum eða þjónustu og einnig til að fylgjast með gæðum og tegundum viðskiptamannastuðnings og stuðnings vegna vörukaupa og þjónustu, stuðnings sem við veitum viðskiptavinum okkar. Lögmætar forsendur fyrir því að vinna úr þessum upplýsingum, lögmætir hagsmunir EvaAlberts ehf., felast í því að veita vandaðan stuðning vegna vörukaupa. Samþykki þitt, sem þú getur dregið til baka, eru þær lögmætu forsendur sem eru nauðsynlegar til að við skráum okkur inn á reikning þinn hjá EvaAlberts ehf. en það er gert eftir atvikum til að hjálpa við að greiða úr flækjum og leysa vandamál.

Við söfnum og geymum persónuupplýsingar um þig m.a. í eftirfarandi tilgangi:

  • Til að geta veitt þér þá þjónustu sem þú óskar eftir, hvort sem það er að taka á móti greiðslum og/eða í tengslum við vörur og þjónustu sem við bjóðum upp á eða höfum milligöngu um. Að öðru leyti til að framfylgja skilmálum okkar.

  • Til að svara fyrirspurnum þínum í gegnum tölvupóst eða síma og/eða bregðast við óskum þínum.

  • Til að geta sent þér upplýsingar í tölvupósti eða í „sms“ um tilboð á vörum og afslætti á vöru, að því gefnu að þú samþykkir slíkt.

  • Til að geta sent þér upplýsingar sem eru sérsniðnar að þér, svo sem á afmælisdegi þínum, um afslátt af vörum sem eru geymdar í körfu á vefsíðum o.fl.

  • Til að efna samning okkar við þig um veitingu ákveðinnar þjónustu eða vöru,

  • Til að geta uppfyllt skyldur okkar samkvæmt bókhaldslögum, samkvæmt beiðnum frá opinberum yfirvöldum og stofnunum og öðrum ákvæðum laga.

  • Til að geta tekið ákvörðun um viðskiptakjör þín og hvort stofna eigi til reikningsviðskipta óskum við eftir upplýsingum úr vanskilaskrá um þá einstaklinga/fyrirtæki.

  • Til að gera þér kleift að deila efni á samfélagsmiðlum af vefsvæði okkar.

  • Til að geta átt í samskiptum í tengslum við kaup í gegnum vefsíður okkar.,

  • Til að senda þér mikilvægar upplýsingar sem tengjast þjónustu okkar við þig t.d. upplýsingar um breytingar á skilmálum og annað sem tengist þjónustu okkar við þig.

  • Til að geta greint og gert áætlanir innan fyrirtækisins, við markaðsrannsóknir, til að bæta þjónustu okkar og tekið saman tölfræðilegar upplýsingar í gæða- og markaðsstarfi.

  • Til að gera þér kleift að taka þátt í leikjum, keppnum, kynningarherferðum, könnunum eða öðrum kynningum á okkar vegum. Í einhverjum tilvikum kunna að vera viðbótarupplýsingar sem þú þarft að kynna þér sérstaklega og hvetjum við þig til að gera það.

Að því gefnu að þú veitir okkur samþykki þitt getum við notað persónuupplýsingar þínar til að kynna fyrir þér vörur og þjónustur frá okkur, eignartengdum félögum eða samstarfsaðilum. Við gætum einnig sent þér annað markaðstengt efni sem við teljum að þú gætir haft áhuga á.

Innt er eftir samþykki þínu á vefsíðum okkar þegar þú sækir um aðgang. Þú getur einnig komið samþykki þínu á framfæri með því að senda okkur tölvupóst á adstod@evaalberts.is 

Þessi samskipti gætu átt sér stað í gegnum tölvupóst síma, bréfleiðis eða með SMS. Þú getur alltaf afturkallað samþykki þitt hvenær sem þér hentar til að koma í veg fyrir að við sendum þér efni í markaðstengdum tilgangi í framtíðinni. Þú getur það með því að fara á vefsíðu okkar og afskrá þig, smella á tengil í tölvupósti sem þú hefur fengið frá okkur eða sent tölvupóst á adstod@evaalberts.is. Í slíkri beiðni þarf að koma skýrt fram að þú viljir ekki fá sent frá okkur slíkt efni, framvegis.

Ekki er víst að afturköllunin taki tafarlaust gildi en við munum reyna að verða við slíkri beiðni eins fljótt og mögulegt er, en tryggjum að að verði innan 30 daga. Ef þú vilt ekki fá markaðstengt efni frá okkur, getum við samt haldið áfram að hafa samband við þig og sent þér nauðsynlegar upplýsingar í tengslum við þjónustu okkar og/eða lögum samkvæmt.

MIÐLUN TIL ÞRIÐJA AÐILA
Flokkar viðtakenda persónuupplýsinga
Í því skyni að uppfylla þann tilgang sem lýst er hér að ofan kann að vera nauðsynlegt að miðla persónugreinanlegum upplýsingum um þig til þriðja aðila. Til að mynda sjá slíkir aðilar um vinnslu við debet- og kreditfærslur, vöruflutninga, þjónustuver, útsendingu tölvupósts, hýsingu UT-búnaðar, fjarskiptafyrirtæki og rekstur tölvukerfis.

Okkur er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi umboðsmaður eða verktaki okkar, í þeim tilgangi að ljúka við verkefni fyrir þig eða veita þér þjónustu eða vöru sem þú hefur beðið um eða samþykkt. Okkur er einnig heimilt að deila upplýsingum með vinnsluaðilum þegar það er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni t.d. við innheimtu á vanskilakröfum. Við deilum einnig upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með fyrirtækinu við gæða- og markaðsstarf. Við afhendum vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir vinnsluaðila í framangreindum tilgangi og gerir fyrirtækið þá samning þar sem vinnsluaðilarnir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um þig öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.

Aðrir þjónustuveitendur:
EvaAlberts ehf. notar skýjaþjónustu þriðja aðila eins og MAILCHIMP til að aðstoða við að senda tölvupósta. Þjónusta þessi fylgist með starfsemi sem tengist þessum tölvupóstum, hvort þeir séu opnaðir, á hvaða tengla var slegið á og hvort viðskipti hlutust af því að opna þessa tengla. EvaAlberts ehf. notar þessi gögn til að greina hversu mikil þátttaka hlaust af þessum tölvupóstum. EvaAlberts ehf. notar þjónustuveitendur úr hópi þriðju aðila til að senda keyptar vörur og hjálpa okkur við að skilja betur notkun á vefverslun EvaAlberts ehf.

Önnur upplýsingagjöf:
Við gætum veitt öðrum persónuupplýsingar um þig: a) ef við höfum gilt samþykki til að gera það, b) til að hlíta gildri vitnastefnu, lagaskyldu, dómsúrskurði, lagalegu ferli eða öðrum lagalegum skuldbindingum, c) til að framfylgja skilmálum, skilyrðum og stefnu okkar, eða d) eins og nauðsyn krefur til að fylgja tiltækum lagaúrræðum eða verja lagalegar kröfur. Við gætum einnig flutt persónuupplýsingar þínar til hlutdeildarfélags, dótturfélags eða þriðja aðila þegar gerðar eru skipulagsbreytingar, við samruna eða sölu fyrirtækisins, stofnun fyrirtækis um sameiginlegt verkefni, sértækt verkefni, yfirfærslu eða annars konar tilfærslur á allri starfsemi eða hluta hennar, öllum eigum eða birgðum EvaAlberts ehf. eða hluta þeirra, þ.m.t og án takmarkana í sambandi við gjaldþrotameðferðir eða svipaðar meðferðir, að því tilskildu að slík starfseining sem við yfirfærum persónuupplýsingar til hafi ekki heimild til að vinna úr öðrum persónuupplýsingum þínum en tilgreint er í stefnu okkar varðandi friðhelgi einkalífsins og án þess að láta þér í té tilkynningu þess efnis og ef gildandi lög krefjast þess, fá samþykki þitt til þess.

Vafrakökur og svipuð tækni
Vefsetur:
Við, með hjálp þriðju aðila þjónustuveitenda gagnagreiningar, söfnum ákveðnum upplýsingum þegar þú heimsækir vefsetur okkar í því skyni að hjálpa til við greiningu á því hvernig þú og aðrir gestir ferðast um vefsetur EvaAlberts ehf. og tökum saman samanlagða tölfræði um notkun setursins og svarhlutfall. Innan þessara upplýsinga teljast IP-vistfang (e. IP address), landfræðileg staðsetning búnaðar þíns, tegund vefvafra og tungumál sem þú notar þar, dagsetning og stund heimsóknar, hvenær sólarhrings þú kemur á vefsetrið, hvaða síður þú skoðar innan þess og á hvaða síðuþætti (t.d. tengla) þú slærð. Við gætum notað vafrakökur, myndeindartög (e. pixel tags), gegnsæjar GIF-myndir eða svipuð tól á vefsetri eða í tölvupóstum okkar til að hjálpa til við að safna saman og greina slíkar upplýsingar. Við notum þessar upplýsingar til láta í té það efni sem er mest viðeigandi hverju sinni, til að mæla skilvirkni auglýsinga, auðkenna og lagfæra vanda og til að bæta heildarreynslu gesta okkar á vefsetrinu. Við gætum jafnframt starfað með einum eða mörgum þriðju aðilum til að láta í té auglýsingar á Netinu fyrir hönd okkar. Þeir gætu notað myndeindartög eða aðra svipaða tækni til að safna upplýsingum um heimsóknir þínar á vefsetrið og þær upplýsingar síðan til að senda þér markvissar auglýsingar. 

Viljir þú ekki að upplýsingum sé safnað fyrir milligöngu þessara tæknitóla þarf aðeins einfalt ferli í flestum netvöfrum til að afþakka sjálfkrafa þjónustu þeirra eða fá upp val til að hafna eða þiggja þjónustu þeirra.

VEFSETUR EVAALBERTS EHF FYRIR FARSÍMA:
Við söfnum einnig gögnum frá notendum að því er varðar notkun þeirra á vefsetri EvaAlberts ehf. fyrir farsíma. Tegundir greinanlegra upplýsingar sem er safnað fela meðal annars í sér dagsetningu og tímann þegar smáforritið fær aðgang að netþjónum okkar, staðsetningu tækisins, valið tungumál, hvaða upplýsingar og skrár hefur verið niðurhalað í forritið, notendahegðun (t.d. hvaða þættir eru notaðir, tíðni notkunar), stöðuupplýsingar tækis og búnaðar, tegund tækis, vélbúnaðar- og stýrikerfisupplýsingar og upplýsingar sem varðar hvernig smáforritið virkar. EvaAlberts ehf. notar þessi gögn til að bæta gæði og virkni forrita okkar fyrir farsíma og vefverslun EvaAlberts ehf. til að þróa og markaðssetja vörur og þætti sem þjóna best þér og öðrum notendum og til að auðkenna og leiðrétta stöðugleikavanda forritsins og annan nothæfnisvanda eins fljótt og auðið er.

Lögmætir hagsmunir okkar til að skilja hvernig viðskiptavinir okkar eiga gagnkvæm samskipti við vefsetur okkar eru þær lagalegar forsendur sem við höfum varðandi vinnslu á greinanlegum upplýsingum, í þeim tilgangi að bæta reynslu notendans og virkni vara, snjallforrita og vefseturs okkar.

Hér eru dæmi um þriðju þjónustuaðila sem við notumst við nú þegar og veita greiningu og svipaða þjónustu:

GREININGARÞJÓNUSTA:
Google: Við notum Google Analytics til að fylgjast með tölfræði vefsíðunnar og öðrum lýðfræðilegum upplýsingum, áhugamál og hegðun á vefsetrum. Við notum einnig Google Search Console stjórnborðið til að hjálpa okkur að skilja hvernig gestir finna vefsetur okkar og í því skyni að bæta leitarvélabestun (SEO) okkar. Fáðu frekari upplýsingar um hvernig nota má þessar greiningarupplýsingar, hvernig eigi að stýra notkun upplýsinga þinna og hvernig skuli komast hjá því að Google Analytics noti gögn þín.

Samfélagsmiðlar:
Þriðju þjónustuaðilar samfélagsmiðla sem láta í té gagnvirkar íbætur (e. plug-ins) eða þætti í samfélagsmiðlum (t.d. til að heimila þér að tengjast Facebook eða Twitter í því skyni að finna vini til að bæta við í tengslahópinn eða til að „læka“ síðu) um vefsetur EvaAlberts ehf., gætu notað vafrakökur eða aðrar aðferðir (t.d. vefvita (e. web beacons) til að safna upplýsingum um notkun þína á vefsetrum. Þriðji aðili styðst við stefnu sína varðandi friðhelgi einkalífsins, sem tiltæk er á samfélagsmiðlinum, við að nota slíkar upplýsingar og leggjum við til að þú skoðir hana ítarlega. Slíkir þriðju aðilar gætu notað þessar vafrakökur eða aðrar ferilskoðunaraðferðir í eigin skyni með tengja upplýsingar um notkun þína á vefsetri okkar við þær persónuupplýsingar sem þeir gætu ráðið yfir um þig. Við gætum einnig komist yfir greiningarupplýsingar frá samfélagsmiðlum sem hjálpa okkur að mæla skilvirkni efnisinntaks okkar og auglýsinga á samfélagsmiðlum.

Eftirfarandi eru þeir vinnsluaðilar sem við miðlum persónugreinalegum upplýsingum til:

105 Productions ehf.

Hugbúnaðarfyrirtæki sem leggur til forritara sem vinna að þróun vefsvæða okkar. 105 Productions ábyrgist að það starfsfólk þeirra sem hefur aðgang að kerfum okkar sé bundið trúnaði.

Forritarar 105 Productions hafa aðgang að gagnagrunnum vefsvæða okkar

Dreamhost, LLC

Hýsing vefsvæða okkar er hjá Dreamhost. Dreamhost ábyrgist að það starfsfólk þeirra sem hefur aðgang að kerfum okkar sé bundið trúnaði. Heldur einnig utan um tólvupóstsamkipti við viðskiptavini þegar þeir hafa samband við okkur.

Afritunartaka á gagnagrunni.
Þær persónuupplýsingar sem viðskiptavinur eða starfsmaður gefur upp geta farið inn í kerfið.

Mailchimp.com

Heldur utan um póstlista okkar.

Þær persónuupplýsingar sem viðskiptavinur eða starfsmaður gefur upp geta farið inn í kerfið.

FLUTNINGUR TIL ANNARRA LANDA
Við gætum notað  þjónustuveitendur, sem í einhverjum tilvikum kunna að vinna persónuupplýsingar þínar utan EES-svæðisins. Í slíkum tilvikum ábyrgjumst við að flutningur gagna til landa utan EES-svæðisins eigi sér aðeins stað í samræmi við ákvæði þar að lútandi í gildandi persónuverndarlöggjöf.

ÖRYGGI PERSÓNUUPPLÝSINGA
Við viðhöfum viðeigandi öryggisráðstafanir í því skyni að hindra að persónuupplýsingar þínar glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi. Aðgangur að upplýsingunum er auk þess takmarkaður við þá aðila sem nauðsyn ber til og sem eru bundnir trúnaðarskuldbindingu.

Við vekjum athygli á því að þú berð ábyrgð á persónuupplýsingum, t.d. nafni, aldri og mynd, sem þú kýst að deila á almennum vettvangi, t.d. í gegnum spjallrás eða Facebook síður vefsíðna okkar.

Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á netinu er aldrei fullkomlega öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur hættu á að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.

Ef upp kemur öryggisbrestur sem hefur áhrif á persónuupplýsingar munum við tilkynna slíkt til Persónuverndar og eftir atvikum til þín eftir því sem lög mæla fyrir um.

Teljir þú að samskipti þín við okkur séu ekki örugg, biðjum við þig um að láta okkur umsvifalaust vita um vandamálið með því að senda póst á netfangið adstod@evaalberts.is

Við óskum eftir því að einstaklingar undir 13 ára aldri veiti EvaAlberts ehf. ekki persónuupplýsingar. Ef við komumst að raun um að við höfum safnað saman persónuupplýsingum frá barni undir 13 ára aldri munum við grípa til aðgerða í því skyni að eyða þeim upplýsingum eins fljótt og auðið er.

UPPFÆRSLUR Á STEFNU 
Við gætum uppfært af og til þessa stefnu þegar við bætum við nýjum vörum, þjónustu og smáforritum og þegar við bætum núverandi framboð okkar og um leið og tækni- og lagabreytingar verða. Þú getur séð hvenær þessi stefna var síðast endurskoðuð með því að líta til „Síðast uppfærð“ skýringartextann efst á þessari síðu. Breytingar taka gildi þegar við setjum inn endurskoðaða stefnu varðandi persónuvernd.

Við munum tilkynna þér ef þessar breytingar eru efnislegar og óska eftir samþykki þínu ef þess er krafist í gildandi lögum. Þessi tilkynning verður veitt með tölvupósti eða með því að setja inn tilkynningu þess efnis á vefsetur og smáforrit EvaAlberts ehf. sem tengjast þessari stefnu.

HVE LENGI ERU PERSÓNUUPPLÝSINGAR GEYMDAR
Við munum geyma persónuupplýsingar þínar eins lengi og aðgangur þinn hjá vefsíðu EvaAlberts ehf. er talinn virkur, aðeins svo lengi sem nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. 

Gögn og upplýsingar sem EvaAlberts ehf. geymir í upplýsingakerfum sínum eru einungis notuð til að við getum sinnt hlutverki okkar á sem bestan máta og þjónustað og stutt viðskiptavini eins vel og hægt er. Geymslutími slíkra persónuupplýsinga fer eftir eðli upplýsinganna og þeim lagareglum sem gilda um viðkomandi vinnslu persónuupplýsinga, t.d. skatta- eða bókhaldslöggjafar. Í einstaka tilvikum kann einnig að vera nauðsynlegt að geyma gögn vegna lögmætra hagsmuna , t.d. vegna deilumála.

RÉTTUR ÞINN
Í vissum tilvikum átt þú réttindi samkvæmt persónuverndarlöggjöf í tengslum við vinnslu okkar á persónuupplýsingum. Ef þú vilt nýta þessi réttindi biðjum við þig að hafa samband við okkur og við munum leitast við að svara beiðni þinni eins fljótt og auðið er, en tryggjum að það verði innan 30 daga, nema um sé að ræða margar eða umfangsmiklar beiðnir. Við kunnum að óska eftir viðbótarupplýsingum frá þér í tengslum við beiðni þína, t.d. vegna auðkenningar.

Við tökum almennt ekki gjald fyrir afhendingu gagna eða afgreiðslu annarra beiðna. Við áskiljum okkur þó rétt á að innheimta gjald eða synja um afhendingu, þegar um er að ræða beiðnir sem eru bersýnilega tilhæfulausar, óhóflegar eða margendurteknar.

Réttur til aðgangs: Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum um þig og að fá afhent afrit upplýsinganna. Með þeim hætti getur þú fullvissað þig um að upplýsingarnar séu réttar og að vinnsla okkar á þeim sé í samræmi við lög.

Réttur til leiðréttingar: Ef einhverjar upplýsingar um þig eru rangar eða ónákvæmar átt þú almennt rétt á að láta okkur leiðrétta þær.

Réttur til eyðingar: Í vissum tilvikum getur þú átt rétt á að við eyðum persónuupplýsingum sem við geymum um þig. Þetta á einkum við í þeim tilvikum þar sem upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar, ef þú hefur andmælt vinnslu upplýsinganna (sbr. hér að neðan), ef vinnslan reynist ólögmæt, eða ef vinnslan byggði á samþykki sem þú hefur síðar afturkallað. Við áskiljum okkur  þó rétt til að meta í hvert eitt sinn hvort skylt sé að eyða gögnum.

Réttur til að andmæla vinnslu: Ef vinnsla okkar byggir á almannahagsmunum/ lögmætum hagsmunum okkar eða annarra og þú telur að vegna aðstæðna þinna brjóti vinnslan gegn grundvallarréttindum þínum, getur þú andmælt vinnslunni. Ef þú andmælir, hættum við vinnslunni nema við getum bent á ríkari lögmæta hagsmuni af að halda henni áfram.

Réttur til takmörkunar á vinnslu: Í eftirtöldum tilvikum átt þú rétt á að við stöðvum vinnslu persónuupplýsinga:

  • Ef þú vefengir að persónuupplýsingarnar séu réttar (þangað til við getum staðfest að þær séu réttar)

  • Vinnslan er ólögmæt, en þú vilt ekki að persónuupplýsingunum sé eytt

  • Við þurfum ekki lengur á persónuupplýsingunum að halda fyrir vinnsluna en þú þarfnast þeirra til þess að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur

  • Þú hefur andmælt vinnslunni, sbr. að ofan. Í því tilviki stöðvum við vinnslu meðan við höfum ekki bent á ríkari lögmæta hagsmuni okkar af að halda henni áfram.

Réttur til að afturkalla samþykki: Í þeim tilvikum þar sem við byggjum vinnslu á samþykki þínu er þér ávallt heimilt að afturkalla slíkt samþykki. Afturköllun þýðir þó ekki að vinnsla sem fór fram áður en samþykki var afturkallað sé ólögmæt.

Til að krefjast aðgangs að og leiðrétta, takmarka færanleika eða eyða persónuupplýsingum þínum eða hætta með reikning þinn hjá EvaAlberts geturðu haft samband við okkur á adstod@evaalberts.is. EvaAlberts ehf. veitir öllum einstaklingum sem eru á skrá hjá félaginu og eftir því óska, aðgang að upplýsingum um þau persónugögn sem aðilinn vistar og/eða vinnur með um einstaklinginn.

PERSÓNUVERND
Ef þú hefur spurningar, athugasemdir, eða kvartanir fram að færa varðandi þessa persónuverndaryfirlýsingu eða meðferð okkar á persónuupplýsingum getur þú haft samband við okkur á netfanginu: adstod@evaalberts.is

Ef þú telur þig ekki fá úrlausn þinna mála er þér ávallt heimilt að beina kvörtun til Persónuverndar

BREYTINGAR
Persónuverndaryfirlýsing þessi var samþykkt þann 1. maí 2020.

Persónuverndarstefna okkar er í stöðugri skoðun og því kann þessari persónuverndaryfirlýsingu að verða breytt. Við munum birta allar slíkar breytingar á vefsíðu okkar: https://www.evaalberts.is.

Með sama hætti er okkur mikilvægt að upplýsingar um þig séu ávallt sem réttastar. Því biðjum við þig góðfúslega að láta okkur vita ef tengiliðaupplýsingar þínar – t.d. símanúmer þitt eða netfang eða aðrar upplýsingar breytast.